29 Júní 2007 12:00

Um kl. 17:00 s.l. fimmtudag var 17 ára ökumaður stöðvaður í Norðfirði á 150 km. hraða.  Sá á yfir höfði sér háa fjársekt og sviptingu ökuleyfis

Um kl 22:00 var bifreið stöðvð á 141.km. hraða í Álftafirði.  Um þrem tímum seinna var sama bifreið stöðvuð í Neskaupstað, við umferðareftirlit, og vaknaði þá grunur hjá lögreglumönnum um að fíkniefni væru í bifreiðinni einnig að ökumaður hennar væri undir áhrifum fíkniefna við aksturinn.  Fíkniefnahundurinn Kiza var á vettvangi og fann hún um það bil 7 gr. af hassi og lítilræði af kókaíni.  Fíkniefnapróf sem tekið var af ökumanninum reyndist jákvætt og má hann búast við kæru fyrir akstur undir áhrifum eiturlyfja.