3 Október 2007 12:00

Fangarnir sem struku frá Litla-Hrauni í gærkvöldi eru enn ófundnir.  Lögreglu hafa borist tilkynningar um innbrot í hesthús á Eyrarbakka og eru vísbendingar um að þar hafi menn dvalið um stund.  Í Tjarnarbyggð á milli Eyrarbakka og Selfoss var brotist inn í vinnuskúr og þaðan stolið mat en engu öðru.  Í Stóru Sandvík var bifreiðinni ZX 224 stolið á tímabilinu frá kl. 02:00 til 07:50 í morgun.  Allt bendir til að strokufangarnir hafi stolið bifreiðinni sem er af gerðinni Skoda Octavia dökkgrár árgerð 2004. Úr annari bifreið við Stóru Sandvík var stolið greiðslukorti sem notað var til greiðslu á vörum í 10-11 verslun við Staðarberg í Hafnarfirði nú í morgun kl. 06:24. 

Af þessu leiðir að strokufangarnir eru komnir á höfuðborgarsvæðið.  Lögreglan biður alla þá sem hafa orðið varir eða verða varir við bifreiðina ZX 224 að hafa strax samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010.  Einnig er starfsfólk á bensínafgreiðslum  og í verslun og þjónustu beðið að veita athygli ef grunsamlegir menn eru að greiða fyrir vörur og þjónustu með greiðslukorti sem er merkt sem innkaupakort ríkisins frá Eurocard að gera lögreglu viðvart þegar í stað.