30 Desember 2013 12:00

Kona sem flutt var alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys á Hellisheiði í gær er látin.  Hún hét Dagný Ösp Runólfsdóttir og var fædd 20.01.1992, búsett í Hveragerði. Hún var ókvænt og barnlaus.  Dagný var ökumaður fólksbifreiðar sem ekið var vestur Suðurlandsveg og lenti í árekstri við aðra fólksbifreið sem ekið var í gagnstæða átt.  Í þeirri bifreið voru móðir og tvö börn hennar,  tveggja og átta ára.  Annað barnið var um tíma á gjörgæslu vegna meiðsla sinna en hefur nú verið flutt á almenna deild.  Meiðsl hinna eru minniháttar. 

Málið er í rannsókn hjá Lögreglunni á Selfossi og eru allir þeir sem urðu vitni að aðdraganda slyssins beðnir að hafa samband í síma 480 1010