23 Mars 2015 14:52

 

Alvarlegt umferðarslys varð á Garðskagavegi um kvöldmatarleytið í gær þegar bifreið lenti utan vegar og valt. Ökumaðurinn, kona á þrítugsaldri, varð undir bifreiðinni og slasaðist. Tvö ung börn hennar sem einnig voru í bifreiðinni sluppu, að því er virtist, ómeidd.

Það voru tveir vegfarendur sem komu fyrstir að bifreiðinni á hvolfi utan vegar. Þeir lyftu henni upp og komu henni á hjólin.  Eftir að hafa hringt í neyðarlínuna fóru þeir að sinna börnunum og hlú að konunni. Hún var flutt á Landspítala en ekki sögð í lífshættu. Grunur leikur á að hún hafi ekki verið með öryggisbeltið spennt við aksturinn.