27 Ágúst 2012 12:00

Ökumenn í fíkniefnavímu

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var á ótryggðum bíl , sem númerin voru klippt af.  Lögregla hafði veitt bíl hins ökumannsins  athygli vegna óvenjulegs aksturslags og stöðvað hana. Mikla kannabislykt lagði frá bílnum sem maðurinn ók, augljóslega undir áhrifum fíkniefna, og viðurkenndi hann neyslu kannabisefna eftir að hann hafði verið færður á lögreglustöð.