3 Júlí 2015 11:50

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tugi bifreiða í nótt á Ásbrú, þar sem ATP – tónlistarhátíðin fer nú fram. Um var að ræða eftirlit með ölvunarakstri og ökuréttindum. Reyndist hver einasti ökumaður með allt sitt á hreinu.

Hátíðina sóttu í gærkvöld um þrjú þúsund gestir og lét fólk vel af veru sinni þar.