25 September 2012 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina ólöglega samkomu í samkomuhúsinu í Sandgerði. Ungmennum undir lögaldri hafði, ásamt öðrum eldri, boðist að kaupa sig inn á skemmtunina og þiggja síðan veitingar á staðnum, áfengar sem óáfengar.  Sá sem varð fyrir svörum, er lögreglu bar að garði, tjáði henni að þarna væri verið að halda upp á afmæli, en afmælisbarnið væri reyndar ekki á staðnum. Þá væri hópur tökufólks að taka upp tónlistarmyndband við þetta tækifæri. Þar sem ekki hafði verið sótt um leyfi fyrir skemmtuninni, en um leyfisskylda starfsemi var að ræða, var ungmennunum gert að slíta samkomunni, sem þau og gerðu.

Staðin að hnupli í Leifsstöð

Kona um fimmtugt var staðin að hnupli í 10-11 verslun í Leifsstöð fyrir fáeinum dögum. Um var að ræða lítilræði af matvöru, sem konan tók ófrjálsri hendi. Hún stóð svo við inngang brottfararmegin og gæddi sér á góssinu þegar lögreglu bar að. Hún gekkst við því að hafa tekið umræddan varning, en þar  sem enginn hefði verið til að afgreiða sig hefði hún gengið út án þess að borga. Hún kvaðst gjarnan vilja greiða fyrir matvælin, en vildi ekki fyrir nokkurn mun  aftur inn í verslunina. Því varð úr að hún lét lögreglu hafa peninga, sem fór inn, greiddi skuld hennar, fékk kvittun, sem konan fékk í hendur og þar með var málinu lokið.