4 Júlí 2011 12:00

Lögreglunni á Selfossi bárust í gærkvöldi kl. 23:42 tilkynningar um að skothvellir heyrðust frá húsi á Stokkseyri.  Í framhaldi af því var húsráðandi þar, sem var ölvaður,  handtekinn og er nú í vörslu lögreglu.  Við handtökuna hafði hann í hótunum í orði við lögreglumenn á vettvangi en beindi ekki skotvopnum sem hann var með að þeim.  Hann hefur kannast við að hafa hleypt af skotum við hús sitt.   Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Selfossi og nýtur hún aðstoðar sérfræðinga frá tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins og Sérsveitar Ríkislögreglustjóra.  Í undirbúningi er að krefjast gæsluvarðhalds yfir manninum.