13 Febrúar 2015 13:25

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærdag afskipti af karlmanni sem ók rafmagnsvespu og var með með barn sitt  fyrir aftan sig. Í ljós kom að maðurinn var ölvaður á vespunni. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.  Lögreglan haldlagði farartækið og var málið tilkynnt til viðkomandi barnaverndarnefndar.

Áður hafði lögregla haft afskipti af ökumanni, sem einnig reyndist ölvaður við akstur bifreiðar sinnar. Við húsleit vegna málsins fundust sterar og kannabisefni. Einnig munir til kannabisræktunar. Maðurinn var eftirlýstur vegna vararefsingar.