29 Mars 2008 12:00

Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ökumanni fólksbifreiðar um kl. 04:30 í morgun sem ók austur Suðurlandsveg í Flóa á 194 km hraða.  Ekki var þetta það eina sem var aðfinnsluvert við háttarlag ökumanns því hann lyktaði af áfengi.  Hann var færður í lögreglustöð þar sem hann gekkst undir blásturspróf.  Niðurstaða þess var á þann veg að hann var yfir mörkum.  Ökumaðurinn var því sviptur ökurétti til bráðabirgða og mál hans sent til ákæruvalds til frekari ákvörðunar um refsingu.