6 Maí 2016 09:33

Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg í gærmorgun. Lögreglan á Suðurnesjum og sjúkrabifreið mættu á vettvang og var maðurinn þá kominn út úr bifreiðinni en reyndist ekki slasaður. Þegar lögreglumenn ræddu við hann lagði af honum áfengisþef og viðurkenndi hann áfengisneyslu. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Bifreiðin var fjarlægt með dráttarbifreið þar sem hún hafði skemmst mikið við veltuna. Voru skráningarnúmerin tekin af henni vegna þess. Þá urðu skemmdir á vegriði við Reykjanesbraut vegna atviksins.