12 Desember 2010 12:00

Helgina 10.- 12. desember var lögreglan á Suðurnesjum með sérstakt eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri.  Í þessu sérstaka verkefni hafði lögreglan á Suðurnesjum,  4 lögreglumenn og tvær lögreglubifreiðar.  

124 ökumenn voru stöðvaðir yfir helgina og  var rætt við þá.  Ekkert athugavert kom í ljós við skoðun.

Þeir ökumenn sem lögregla ræddi við í þessu sérstaka eftirliti , tóku vel í þessa framkvæmd lögreglu og fannst gott til þess að vita að lögreglan væri með eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri.    Yfir helgina voru tveir ökumenn færðir á lögreglustöð, einn grunaður um meintan akstur undir áhrifum áfengis, og annar ökumaður grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Umferðin um helgina gekk að öðru leiti vel og án slysa.