20 Mars 2020 18:19

Vegna COVID-19 faraldursins er mikilvægt að við, íbúar Austurlands, stöndum öll saman og hugum að velferð allra í okkar samfélagi. Lögregla, heilbrigðisyfirvöld og félagsþjónustur svæðisins þekkja vel til sinna skjólstæðinga og reyna að sinna öllum vel í því ástandi sem við tökumst nú á við. Til þess að fyrirbyggja að einhver sem er einangraður og/eða þarfnast þjónustu fari fram hjá okkur, biðlum við til almennings um að fylgjast með nágrönnum og ættingjum og láta vita ef grunur leikur á að einhver þurfi á stuðningi okkar að halda.

Hafa má samband við Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs í síma 470-0700 eða Félagsþjónustu Fjarðabyggðar í síma 470-9000.

Við erum öll almannavarnir.

Lögreglan á Austurlandi, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Félagsþjónustur Fljótsdalshéraðs og Fjarðabyggðar