25 Desember 2005 12:00

Jóladagsmorgun kl. 07:56 var tilkynnt um að stórt timburstykki hafi fokið á glugga í sjúkrahúsinu í Bolungarvík og brotið þar rúður.  Svipuð tilkynning barst frá öðru húsin sem stendur skammt frá sjúkrahúsinu.  Mjög hvasst var í Bolungarvík á þessum tíma.  Í ljós kom að þak hafði fokið af Stúkuhúsinu við Skólastíg og hafði brak úr þakinu hafnað á fjórum húsum allt frá Skólastíg að sjúkrahúsinu sem stendur við Miðstræti.  Stúkuhúsið var samkomustaður Bolvíkinga á fyrrihluta síðustu aldar en hefur staðið ónotað í áratugi og í lélegu ástandi.  Engin slys urðu á fólki en eitthvað tjón hlaust af er rúður brotnuðu og klæðing á húsum skemmdist.

Björgunarsveitin Ernir var kölluð út og  sá björgunarsveitarmenn um að negla plötur fyrir brotna glugga og stöðva frekara fok á braki og járnplötum.

Er líða tók á morguninn kom í ljós að númerslaus flutningabifreið sem stóð við Ljósaland hafi fokið á hliðina.  Þá kom einnig í ljós að þak hafði fokið af fjárhúsum í Minni-Hlíð en .þar voru um 140 fjár í húsum. Ekki er talið að fénu hafi orðið meint af en unnið verður að því að koma fénu í önnur hús.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu fór vindhraði í 36.6 m/sek. í Bolungarvík þennan morgun en á Þverfjalli, ofan Ísafjarðar,  fór vindur í 44 m/sek. á svipuðum tíma og tjónið varð í Bolungarvík. Vindur var sunnanstæður og fylgdi þessu allt að 10° c hiti.  

Vegna þessara veðuraðstæðna hefur grjóthrun orðið víða á Óshlíð, þó aðallega undir Búðarhyrnu og Arafjalli, og vill lögreglan í Bolungarvík beina þeim tilmælum til vegfaranda að fara með gát um Óshlíð.