9 Janúar 2012 12:00

Björgunarsveitir úr Árnssýslu og úr  Reykjavík og Vegagerðarmenn hafa í kvöld aðstoðað fólk á 20 til 30 bílum í vondu veðri og afleitri færð á Hellisheiði og í Þrengslum.  Enn eru 3 flutningabílar stopp á leiðinni og munu vegheflar sem sendir voru úr Reykjavík annarsvegar og frá Selfossi hinsvegar reyna að koma þeim af stað aftur og til byggða.  Búið er að koma fólki úr fólksbílum niður af heiðinni, sumum í fjöldahjálparstöð RKÍ í Hveragerði en öðrum hefur tekist að koma niður í bílum sínum niður á láglendi þaðan sem þeir hafa bjargað sér sjálfir í húsaskjól eftir því sem við á.   Í framhaldi af þessum aðgerðum munu mokstursmenn Vegagerðarinnar meta aðstæður,  verður og veðurspá og verður þá ákveðið hvort unnt verður að opna veginn aftur í kvöld.  

Fólki er bent á að fylgjast með upplýsingum á vef vegagerðarinnar eða í upplýsingasíma hennar,  1777  Einnig er nauðsynlegt að fylgjast með veðurspá en veðurfræðingur á vakt hjá Veðurstofunni gerir, í samtali við lögreglu nú fyrir stundu,  ráð fyrir  vestan storméljum á Hellisheiði og í Þrengslum í nótt og á morgun.