29 Mars 2016 11:26

Páskahátíðin fór vel fram í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og engin stórvægileg mál komu til hennar kasta yfir hátíðisdagana. Bílvelta varð á Reykjanesbraut þegar tvær bifreiðar lentu saman. Ökumenn beggja sluppu ómeiddir, en fjarlæga varð bifreiðina sem valt með dráttarbifreið. Þá voru fimm ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, flestir á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 128 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Loks voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur.