11 Apríl 2016 15:29

Pilturinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á Holtavörðuheiði sl. laugardag er látinn. Tildrög slyssins voru þau að fólksbíll á norðurleið fór útaf þjóðvegi nr. 1 á Holtavörðuheiði og farþegi í aftursæti, sem ekki var í bílbelti, kastaðist út úr bifreiðinni er hún fór nokkrar veltur. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem hann var síðar úrskurðaður látinn. Pilturinn var á átjánda aldursári. Ökumaður og farþegi í framsæti sluppu með minniháttar meiðsli. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.