3 Nóvember 2020 17:07

Ríkislögreglustjóri hefur ráðið í þrjár af fjórum stöðum sem auglýstar voru í byrjun september í tengslum við skipuritsbreytingar embættisins. Auglýst var eftir umsóknum í stöður sviðstjóra þjónustusviðs, landamærasviðs, almannavarnasviðs og alþjóðasviðs.

Guðmundur Víðir Reynisson hefur verið skipaður yfirlögregluþjónn yfir almannavarnasviðs. Jón Pétur Jónsson hefur verið skipaður yfirlögregluþjónn landamærasviðs og Rannveig Þórisdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs. Ráðningarferli hvað varðar stöðu sviðsstjóra alþjóðasviðs stendur enn yfir. Tilkynnt verður um skipun í stöðuna þegar því er lokið.

Víðir og Jón Pétur tóku formlega við stöðum sínum 1. nóvember síðastliðinn. Rannveig mun taka við þjónustusviði á næstu vikum.