3 Desember 2014 13:12

Ráðist var á unga konu á göngustíg á milli Suðurengis og Vesturhóla á Selfossi um klukkan 23:30 í gærkvöldi.  Konan var á göngu ásamt hundi þegar karlmaður réðist aftan að henni á göngustígnum og snéri henni við.  Maðurinn lagði til konunnar með eggvopni.  Einnig sló hann hana hnefahögg í andlitið. Gat kom á yfirhöfn konunnar og hún hlaut minni háttar áverka.  Maðurinn leitaði í vasa konunnar. Hundurinn lét til sín taka með því að gelta að manninum og glefsa í hann sem varð til þess að árásarmaðurinn lagði á flótta vestur göngustíginn og norður í átt að Lágengi.

Vegna myrkurs sá konan ekki framan í árásarmanninn en lýsti honum sem þreknum og um 175 sentimetrar á hæð.  Hann var dökkklæddur með svarta húfu og frá honum lagði megnan vindlaþef. Skammt frá árásarstaðnum fannst svört húfa en ekki er staðfest hvort hún sé af árásarmanninum.

Læknir var fenginn til að skoða áverka konunnar sem voru eins og fyrr segir minni háttar.

Allir þeir sem gætu búið yfir upplýsingum um mannaferðir á göngustígnum á milli Lambhaga og Tryggvagötu á milli klukkan 23:00 og 23:40 í gærkvöldi eða kannast við lýsingu af manninum eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010.