9 Febrúar 2024 15:45

Embætti ríkislögreglustjóra og heilbrigðisráðuneytið standa saman að ráðstefnu fyrir  fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu sem miðar að því að tengja betur saman þjónustu þessara aðila við þolendur heimilisofbeldis.
Ráðstefnan ber yfirskriftina „Á ég að gera það? Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis“ og verður haldin mánudaginn 18. mars á hótel Hilton Reykjavík Nordica frá kl.  9.00 til 16.00.

Smelltu á myndina til að sjá dagskrá ráðstefnunnar en hana má einnig nálgast hér.

Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnuna en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér:  https://forms.gle/Uu1AQntY1MH19czJ6
Einnig er hægt að tilkynna um þátttöku með tölvupósti á netfangið: sigthrudur.gudmundsdottir@logreglan.is