28 Nóvember 2018 12:03

Gerð hefur verið krafa fyrir Héraðsdómi Suðurlands um farbann yfir litháískum karlmanni fd. 1973 eftir að lögreglumenn handtóku hann á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu í gærmorgun. Þar vann hann að ræktun kannabisplantna í töluverðu magni. Um er að ræða á fjórða tug fullvaxinna plantna og töluverðs magns af græðlingum. Maðurinn hefur kannast við að eiga ræktunina sjálfur.   Hún er vel búin og unnt fylgjast með henni og húsinu þar sem hún fór fram með netmyndavélum úr fjarlægð.

Dómari tók sér frest til fyrramáls til að úrskurða um kröfu lögreglu og verður maðurinn í haldi lögreglu fram að uppkvaðningu úrskurðarins.   Maðurinn er búsettur í Litháen.