11 Mars 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir upplýsingum frá almenningi vegna ráns sem var framið í Dalsnesti við Dalshraun í Hafnarfirði í gærkvöld, en tilkynning um ránið barst lögreglu kl. 21.12. Ef einhver býr yfir upplýsingum sem nýst geta við rannsókn málsins er viðkomandi hvattur til að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókasíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meðfylgjandi er mynd af ræningjanum sem og myndskeið úr eftirlitsmyndavél í versluninni, en ræninginn er um 180 sm á hæð. Hann var klæddur í hettuúlpu, ljósgráar joggingbuxur og dökka Converse-skó. Smellið hér til að sjá myndskeið af ræningjanum.