27 Mars 2012 12:00

Í morgun handtók Lögreglan á Akureyri tvo menn, grunaða um rán í verslun 10/11 við Mýrarveg á Akureyri síðastliðna nótt.

Við yfirheyrslur í dag játaði annar maðurinn ránið. Upplýst er að hann stóð einn að ráninu og að þáttur hins mannsins er lítill.

Ræninginn er á fertugsaldri og hefur áður komið við sögu lögreglu á Akureyri. Við húsleit hjá honum fannst afgangur af ránsfengnum, sem var þó ekki mikill í upphafi. Einnig fannst vopnið sem notað var við ránið skammt frá vettvangi, auk hettu og annars klæðnaðar sem maðurinn hafði notað.

Mennirnir hafa verið látnir lausir og telst málið upplýst.