25 Janúar 2007 12:00

Rannsókn á íkveikju í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn s.l. laugardag miðar vel. Stúlka sem úrskurðuð var í gæsluvarðhald til mánudagsins 29. janúar kærði þann úrskurð til Hæstaréttar sem staðfesti hann í morgun. Hún var hinsvegar látin laus nú síðdegis þar sem það var ekki talið nauðsynlegt vegna rannsóknarhagsmuna að hún sætti gæsluvarðhaldi lengur.

Bráðabirgðaniðurstaða tæknirannsóknar á vettvangi er á þann veg að kveikt hafi verið í húsinu og m.a. notaður við það eldfimur vökvi.

Einn maður, unnusti stúlkunnar og jafnframt sá sem grunaður er um íkveikjuna, situr enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins og rennur það út mánudaginn 5. febrúar. Hann hefur viðurkennt að hafa brotist inn í húsið og stolið þaðan eigum íbúa þess. Hluti þýfisins fannst á heimili stúlkunnar og í fórum hennar sem og í fórum þess sem enn sætir gæsluvarðhaldi.