9 Ágúst 2013 12:00

Skýrslutökur af ökumanni vörubifreiðar og vitna sem hafa gefið sig fram, sem og ítarleg skoðun á vettvangi banaslyss sem varð á Suðurlandsvegi skammt austan Þingborgar þann 7. ágúst s.l. kl. 17:13 hefur leitt í ljós að sendibifreið sem ekið var til austurs fór yfir miðlínu vegar, yfir á vinstri vegarhelming og lenti með vinstra framhorn á vinstra framhorni vörubifreiðarinnar sem ekið var, á réttum vegarhelmingi,  í gagnstæða átt.  Við áreksturinn snérist sendibifreiðin og endaði út af veginum vinstramegin m.v. akstursstefnu hennar.  Ökumaður hennar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað.  Vörubifreiðin stöðvaðist sömuleiðis utan vegar vinstramegin miðað við akstursstefnu hennar.

Báðar bifreiðarnar verða rannsakaðar í bíltæknirannsóknarsetri lögreglunnar á Selfossi.  Í þeirri rannsókn felst ástandsskoðun bifreiðanna sem og mælingar til grundvallar harðaútreininga sem unnir eru af prófessor í vélaverkfræði við Háskóla Íslands.  Einnig er beðið niðurstöðu krufningar á líki ökumanns sendibifreiðarinnar en endanleg niðurstaða hennar mun ekki liggja fyrir fyrr en að einhverjum vikum liðnum.