29 Ágúst 2006 12:00

Rannsókn fíkniefnamálsins sem kom upp á Litla-Hrauni að morgni s.l. laugardags gengur vel.  Nokkrir aðilar utan fangelsisins hafa verið handteknir og yfirheyrðir og liggja fyrir játningar á aðild þeirra er lýtur að innflutningi fíkniefna í fangelsið.

Þrír menn sitja nú þegar í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Rannsókn málsins heldur áfram af fullum þunga en að öðru leyti verst lögregla allra frétta.