1 Maí 2023 14:16

Lögreglan á Suðurlandi hefur haft andlát ungrar stúlku til rannsóknar frá 27. apríl síðastliðnum. Rannsókn lögreglu er umfangsmikil en miðar vel áfram og er rannsóknarvinna í fullum gangi. Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram til föstudagsins 5. maí næstkomandi. Lögreglan hefur notið liðsinnis frá lögreglunni á Suðurnesjum, sem og tækni- og tölvurannsóknardeildum lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Nafn hinnar látnu verður ekki gefið upp að svo stöddu. Rannsókn lögreglu er á viðkvæmu stigi og því verða ekki gefnar út frekari upplýsingar um framgang hennar að sinni. Gefin verður út fréttatilkynning um rannsóknina hér á vefnum þegar tilefni er til.