30 Apríl 2007 12:00

Bráðabirgðaniðurstaða krufningar mannsins sem lést í Hveragerði s.l. föstudagskvöld er sú að um sjúkdóm, sem valdið hafi mikilli blæðingu,  hafi verið að ræða.  Rannsókn málsins, sem var mjög ítarleg  og fól í sér skýrslutökur af vitnum,  eftirgrennslan hjá nágrönnum og nákvæma tæknirannsókn,  er því að mestu lokið af hálfu lögreglu.