1 Nóvember 2007 12:00

Í dag var rannsókn nauðgunarmálsins á Selfossi framhaldið.  Eitt vitni var yfirheyrt.  Sakborningar voru leiddir fyrir dómara síðdegis í dag þar sem þeir gáfu skýrslu.  Að auki var eitt vitni látið staðfesta skýrslu fyrir dómi.  Lögreglustjórinn á Selfossi lagði fram kröfu um farbann á þrjá sakborninga.  Dómari úrskurðaði nú rétt fyrir kl. 19:00 þá þrjá í farbann til kl. 16:00 þann 17. desember n.k.  Næstu skref  eru að fara yfir gögn málsins og meta stöðu þess og ákveða um framhald rannsóknarinnar.