21 Nóvember 2005 12:00

Ríkislögreglustjóri hefur lokið opinberri rannsókn á hendur olíufélögunum og starfsmönnum þeirra vegna ætlaðra refsiverðra brota í starfsemi fyrirtækjanna gegn ákvæðum samkeppnislaga nr. 8/1993.   

  

Ríkislögreglustjóri sendi ríkissaksóknara þann 17. þessa mánaðar rannsóknargögn og niðurstöðu rannsóknar efnahagsbrotadeildar til ákvörðunar.     

Rannsókn ríkislögreglustjóra hófst síðari hluta ársins 2003. Rannsóknin er umfangsmikil og skipta rannsóknargögn á annan tug þúsunda blaðsíðna og ætluð brotatilvik hundruðum. Í þágu rannsóknar málsins voru yfirheyrðir um 80 einstaklingar í um það bil 150 yfirheyrslum.

Nánari upplýsingar veitir Jón H. Snorrason, saksóknari, í síma  8997822.

Ríkislögreglustjóri, 21. nóvember 2005.