28 Apríl 2017 11:21

Karlmaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í fyrradag, þar sem hann ók um á lyftara, reyndist vera sviptur ökurétti. Þá gat hann ekki framvísað vinnuvélaskírteini og reyndist ekki vera skráður með nein slík réttindi. Brotin verða honum dýrkeypt því viðurlög vegna aksturs vinnuvélar sviptur ökurétti nema 50 þúsund krónum, auk þess sem hann þarf að greiða fimm þúsund krónur fyrir að stjórna lyftaranum án vinnuvélaréttinda. Eitt skilyrða fyrir akstri vinnuvéla er að vera með ökuréttindi í lagi.

Annar einstaklingur sem var við vinnu á körfulyftara reyndist heldur ekki vera með vinnuvélaréttindi. Ofan í kaupið hafði hann valdið tjóni á bifreið sem stóð í námunda við vinnustaðinn. Hafði maðurinn verið að snúa körfulyftunni og lenti þá neðsti hluti hennar á bifreiðinni með þeim afleiðingum að afturrúða hennar brotnaði og skottlokið beyglaðist.