20 Mars 2015 13:25

Karlmaður í annarlegu ástandi var staðinn að því að reyna að brjótast inn í mannlausar bifreiðar í Keflavík í gær. Þegar lögregla kom á vettvang stóð hann við eina þeirra. Ekki gat hann gefið neinar haldbærar skýringar á þessum athöfnum sínum. Þegar lögregla hafði gengið úr skugga um að manninum hefði ekki tekist ætlunarverk sitt var honum veitt tiltal og hann síðan sendur heim til sín.