26 Janúar 2007 12:00

Ríkislögreglustjóri afhenti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins fyrr í dag þrjá nýja og vel útbúna lögreglubíla og eitt mótorhjól.  Þetta eru fyrstu bílarnir af þeim tíu sem höfuðborgarlögreglan hefur óskað eftir á þessu ári. Einn bílanna er búinn fullkomnum tölvubúnaði.

Bílarnir eru af gerðinni Volvo S80, Turbo Disel. Þeir eru allir með fullkomnum radar og upptökubúnaði sem einfaldar mjög eftirlit lögreglunnar og leiðsögutæki sem tryggir viðbrögð lögreglunnar í útköllum á ört stækkandi höfuðborgarsvæði.  Einn bílinn er með fullkomnu tölvukerfi sem tengt er við Tetra samskiptakerfið. Tölvan kemur til með að auðvelda vinnu á vettvangi því stefnt er að því að þar verði unnt að sjá ýmsar upplýsingar, svo sem ökuferilsskrá ökumanns, skráningu bifreiða og fleira.

Tveir þessara bílar leysa af hólmi bíla umferðardeildar frá árinu 2000, en búið er að aka þeim rétt tæplega 300.000 kílómetra. Þriðji bíllinn kemur í stað bifreiðar almennrar deildar sem skemmdist á síðasta ári.

Á síðasta ári og í byrjun þessa árs hafa 29 ökutæki bæst við bílaflota lögreglunnar, flest vegna endurnýjunar. Á þessu ári er áætlað að 25 ný ökutæki verði tekin í notkun. Lögreglan á landinu hefur nú 161 ökutæki til afnota.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri afhenti Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins ökutækin fyrr í dag.