23 Janúar 2014 12:00

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fékk þrjú hjól afhent og embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eitt.

Bifhjólin eru af gerðinni Yamaha FJR-1300, þau vega um 300 kg og eru 154 hestöfl. Hjólin henta vel til löggæslustarfa, þetta eru góð vinnuhjól og gott að vinna á þeim, nokkur reynsla er komin á samskonar hjól hjá lögreglunni.

Meðal annars er nýju bifhjólin búin tækjum til radarmælinga. Þau eru með ABS-hemlakerfi, spólvörn, stöðugleikabúnaði og nýjum forgangsbúnaði. 

Hvert hjol kostar tilbúið á götuna um 7 mkr

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri afhendir Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra lykla að mótórhjóli.