15 Júní 2007 12:00

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri fór ásamt samstarfsmönnum til Egilsstaða í gær til að funda með lögreglustjórum og lögreglumönnum á Eskifirði og Seyðisfirði. 

Tilgangur ferðarinnar var að kynna þær breytingar sem orðið hafa á embætti ríkislögreglustjóra síðustu mánuði og kynna löggæsluáætlun 2007-2011 sem dómsmálaráðherra hefur falið embættinu að koma í framkvæmd í samstarfi við lögregluembættin í landinu.  Ríkislögreglustjóri mun halda samskonar kynningarfund með öllum lögregluembættunum.