29 Júlí 2009 12:00

Lögregluembætti landsins eiga góða samvinnu um skipulagningu og framkvæmd löggæslu um komandi verslunarmannahelgi og hafa jafnframt gott samstarf við embætti Tollstjóra, Landhelgisgæsluna, Vegagerðina og Fangelsismálastofnun. 

Ríkislögreglustjóri veitir lögregluembættum landsins sem fyrr stuðning á sviði umferðar- og fíkniefnamála og við almenna löggæslu í bæjarfélögum og á skipulögðum útihátíðum.  Um er að ræða viðbót við það eftirliti sem lögreglustjórar halda sjálfir úti í umdæmum sínum.

Fíkniefnalöggæsla:

Frá 30. júlí og fram yfir verslunarmannahelgina verða á vegum ríkislögreglustjóra tvö teymi fíkniefnalögreglumanna og tollvarða með fíkniefnaleitarhunda og sinna fíkniefnalöggæslu. Þau ferðast um landið og verða á þeim stöðum sem þörf er talin á. 

Lögreglustjórar halda jafnframt sjálfir úti fíkniefnaeftirliti í umdæmum sínum, m.a. með fíkniefnaleitarhundum lögregluembættanna, embættis Tollstjóra og Fangelsismálastofnunar.

Umferðareftirlit:

Á grundvelli samstarfssamnings ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar verður þjóðvega- og hálendiseftirliti sinnt úr þyrlu Landhelgisgæslunnar auk þess sem ríkislögreglustjóri leggur til lögreglubifreið til umferðareftirlits á Suður- og Vesturlandsvegi.

Lögreglan mun leggja sérstaka áherslu á hraðamælingar, sýnilegt eftirlit á hættulegum vegarköflum og á þeim svæðum sem talið er að mestur fólksfjöldi verði á.  Einnig verður lögð áhersla á eftirlit með akstri undir áhrifum áfengis og vímuefna.

Almenn löggæsla:

Sérsveit ríkislögreglustjóra veitir lögreglustjórum aðstoð við almenna löggæslu á bæjarhátíðum, útihátíðum og á höfuðborgarsvæðinu. Þá verður einnig haldið úti hreyfanlegu almennu eftirlit, eftir þörfum hverju sinni.

Ríkislögreglustjóri óskar öllum góðrar ferðar um verslunarmannahelgina.

Ríkislögreglustjórinn, 29. júlí 2009.