22 Ágúst 2016 10:23

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært rúmlega 30 ökumenn fyrir of hraðan akstur. Flest áttu brotin sér stað á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 147 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Allir áttu ökumennirnir það sameiginlegt að aka vel á annað hundrað kílómetra hraða.