27 Desember 2012 12:00

Í dag hafa 4 íbúðarhús verið rýmd.  Eitt í Bolungarvík en hin á Ísafirði.  Var þetta gert vegna hættu á snjóflóðum.  Þá var vegum um Kirkjubólshlíð, Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð lokað af sömu ástæðu.  Sama átti við um veginn um Gemlufallsheiði, Flateyrarveg og Suðureyrarveg.  Snjóflóð féllu úr hlíðum þessara vegakafla í dag.

Björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum hafa staðið í ströngu við lokanir, flutning á fólki og aðra aðstoð við lögregluna í dag. 

Milli kl.19:00 og 20:00 í kvöld var vegurinn um Eyrarhlíð opnaður.  Þeim sem þurftu nauðsynlega að komast þessa leið var gefinn kostur á að aka hana en undir eftirliti björgunarsveitarmanna, sem voru sitt hvoru megin á hlíðinni.

Lögreglan á Vestfjörðum naut aðstoðar Neyðarlínunnar varðandi þetta verk.  Þannig sendi Neyðarlínan SMS boð í alla GSM síma á Ísafirði, Hnífsdal og Bolungarvík varðandi þessa tímabundnu opnun.  Þótti þessi ráðstöfun gefast vel en þetta er í fyrsta sinn sem þessari aðferð er beitt hér á Vestfjörðum.

Ofangreindum vegaköflum verður áfram haldið lokuðum þar til hættumat hefur verið endurskoðað í fyrramálið.  Sama gildir um rýmingarnar.