2 Ágúst 2022 18:35

Alls voru skráð 253 mál hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum um nýliðna helgi, dagana 28. júlí til og með 1. ágúst. Til samanburðar voru skráð mál 252 um verslunarmannahelgina 2019 en þá fór þjóðhátíð í Vestmannaeyjum síðast fram.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þrjú minniháttar umferðaróhöpp voru tilkynnt en engin slys á fólki.

Átta líkamsárásir eru skráðar, þar af eitt heimilisofbeldismál. Enginn þolenda hlaut alvarlega líkamsáverka. Í gær, mánudag, barst tilkynning um tvö kynferðisbrot. Einn var kærður fyrir ofbeldi og hótanir í garð lögreglu.

Lögreglan var líkt og jafnan þessa helgi með öflugt fíkniefnaeftirlit og var með þrjá fíkniefnaleitarhunda til aðstoðar. Alls komu upp þrjátíu fíkniefnamál, þar af eitt þar sem grunur er um sölu og dreifingu.

Lögregla sinnti tugum smærri verkefna af ýmsum toga sem fella má undir að aðstoða og greiða götu borgaranna. Það er mat lögreglu að helgin hafi almennt gengið ágætlega og verið rólegri en síðustu þjóðhátíðir. Að því sögðu er vert að hafa í huga að eitt ofbeldisbrot er einu ofbeldisbroti of mikið.