16 Nóvember 2012 12:00

Ríkislögreglustjórinn stóð fyrir útboði á hjólbörðum fyrir lögregluna í samvinnu við Ríkiskaup á þessu ári. Boðin voru út öll nýkaup á sumar- og vetrarhjóbörðum, umfelganir, jafnvægisstillingar og viðgerðir á hjólbörðum. Niðurstaða útboðsins lá fyrir  í lok s.l. sumars og í kjölfarið var samið við þrjá þjónustuaðila:

Brimborg

Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns

N1

Lögreglan mun á grundvelli samninganna við þessi þrjú fyrirtæki beina viðskiptum með hjólbarða til þeirra, sbr. reglur um opinber innkaup svo framalega að þau séu þeð þjónustustöðvar innan lögregluumdæmanna.