16 Nóvember 2012 12:00

Dagana 5. – 9. nóvember fóru fram æfingar sem miðuðu að því að efla getu sérsveitar ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar til að takast á við verkefni á hafi. Markmið æfinganna var að samhæfa frekar aðferðir sérsveitar ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar við sértækar löggæsluaðgerðir á sjó.

Æfðar voru aðgerðir vegna stórra skipa á hafi úti þar sem m.a. voru notaðir léttabátar. Æfingarnar fóru fram í rökkri og myrkri.

Varðskipið Þór tók þátt í æfingunum og kynntust sérsveitarmenn þeim búnaði sem er um borð í varðskipum og hvernig hann er best nýttur í löggæsluaðgerðum á sjó.