19 Júní 2014 12:00

Lögreglumenn sem starfa í sérsveit ríkislögreglustjóra fá sérhæfða þjálfun vegna mismunandi verkefna sveitarinnar.  Sérsveitin hefur t.d. á að skipa mönnum sem sérhæfðir eru í fjallamensku, línuvinnu, köfun, fallhlífarstökki, sjúkraflutningum o.fl. sem talið er nauðsynlegt að sérsveit lögreglu hafi getu til.
 
Þjálfun og búnaður kafara og sigmanna sveitarinnar kom að notum við leit að týndri konu í Bleiksárgljúfri í umdæmi lögreglustjórans á Hvolsvelli.
 
Nokkrir sérsveitarmenn tóku þátt í leit í gljúfrinu við mjög erfiðar aðstæður þar sem sigmenn og kafarar unnu vel saman við úrlausn verkefnisins. 
 
Sérsveit ríkislögreglustjóra veitir lögreglu um allt land aðstoð við einstök verkefni og við þjálfun lögregluliða þar sem þjálfun sveitarinnar og búnaður hennar kemur að notum.