19 Apríl 2010 12:00

Aðfaranótt föstudags handtóku lögreglumenn á Selfossi þrjá menn vegna innbrots í tvo sumarbústaði við Sogsbakka í Þrastarskógi.  Í bifreið sem þeir voru á var flatskjár, leikjatölva og fleiri munir.   Auk þess fundust fíkniefni í birfeiðinni.  Vegna grunsemda um að þremenningarnir hefðu brotist inn í sumarbústaði var grennslast frekar um málið.  Með aðstoð lögrelgu á höfuðborgarsvæðinu voru fjórir menn handteknir í Reykjavík vegna rannsóknar málsins.  Við húsleitir í Reykjavík fundust stolnir flatskjári og fleiri illa fengnir munir.  Við eina húsleitina fundust tuttugu kannabisplöntur sem voru í ræktun á byrjunarstigi.  Allir hinir handteknu voru fluttir til yfirheyrslu á lögreglustöðina á Selfossi.  

Við rannsókn málsins upplýstust fimm innbrot í sumarbústaði við Sogið þar sem mörgum verðmætum hlutum var stolið svo sem stórum flatskjáum, hljómflutningstækjum og fleiru.  Því til viðbótar varð nokkurt tjón varð á hurðabúnaði og gluggum eftir innbrotsþjófanna sem voru á aldrinum 15 til 18 ára af fjórum þjóðernum.  Þeir höfðu farið fjórar ránsferðir austur bæði að degi og að nóttu.  Lögreglan var með aðgerðaráætlun í gangi vegna innbrotanna sem leiddi til handtöku ungmennanna.  Rannsóknin var nokkuð umfangsmikil og komu að henni ásamt lögrelgumönnum á Selfossi og höfuðborgarsvæðinu barnaverndaryfirvöld og túlkar.