8 September 2014 12:00

Ekið var utan í hlið bifreiðar í Keflavík um helgina þannig að töluverðar skemmdir urðu á henni, rispur eftir endilangri hliðinni, auk þess sem hliðarspegill brotnaði.  Bifreiðin var á ferð þegar önnur bifreið kom á móti henni með fyrrgreindum afleiðingum. Sá sem valdur var að atvikinu ók í burtu án þess að sýna nein merki um að hann ætlaði að stöðva bifreið sína. Lögreglan hafði skömmu síðar upp á viðkomandi.