22 Febrúar 2005 12:00

miðvikud.  23. mars                                      Opið til kl. 03:00 eða 05:30 eftir atvikum

fimmtud.   24. mars   Skírdagur                    Opið til miðnættis.

föstud.       25. mars  Föstudagurinn langi     Lokað en má opna á miðnætti  og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30

laugard.     26. mars                                      Má vera opið til kl. 03:00

sunnud.     27. mars  Páskadagur                  Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30

mánud.      28. mars  Annar í páskum           Má vera opið til kl. 01:00

1. Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að eru bannaðar á neðangreindum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram.

Föstudaginn langa:  Frá kl. 24 á skírdag til kl. 24  föstudaginn langa.

Páskadag:  Frá kl. 03 til kl. 24.

Í 5. gr. laga nr. 32, 1997 um helgidagafrið er kveðið á um starfsemi sem undanþegin er því banni sem að ofan greinir. Meðal þess sem undanþegið er á föstudaginn langa og páskadag má nefna listsýningar, tónleika, leiksýningar og kvikmyndasýningar eða sams konar sýningar. Þó má starfsemin eigi hefjast fyrr en kl. 15.00.

2.  Ofangreinda daga er heimilt að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn.  Áfengisveitingastaðir eru þó háðir tímamörkum í leyfum borgarstjórnar/bæjarstjórna.  Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar.

Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka.  Veitingar áfengis mega samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um. 

Lögreglan gerir ekki athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum þessa daga enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald  ekki truflað.

Lögreglustjórinn í Reykjavík, 18. febrúar 2005.