15 Maí 2006 12:00

laugard.       3. júní                                          Opið til kl. 03:00
sunnud.       4. júní      Hvítasunnudagur          Lokað en má opna á miðnætti  og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30
mánud.       5. júní      Annar í hvítasunnu       Má vera opið til kl. 01:00

1.                   Dansleikir og aðrar skemmtanir að kvöldi laugardags fyrir hvítasunnu mega standa til kl. 03 aðfaranótt hvítasunnudags.
 
2.                   Á hvítasunnudag er eftirtalin starfsemi bönnuð:  Dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.  Sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur svipuð spil fara fram.
 
Í 5. gr. laga nr. 32, 1997 um helgidagafrið er kveðið á um starfsemi sem undanþegin er því banni sem að ofan greinir.  Meðal þess sem undanþegið er má nefna listsýningar, tónleika, leiksýningar og kvikmyndasýningar eða sambærilegar sýningar.  Þó má starfsemin eigi hefjast fyrr en kl. 15:00.  Einnig mega bókasöfn, listasöfn og önnur menningarsöfn vera opin á sama tíma.
 
3.                   Heimilt er að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn.  Áfengisveitingar eru þó háðar ákvæðum í leyfum borgar- stjórnar/bæjarstjórna.  Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar.
 
Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka.  Veitingar áfengis mega samt ekki hefjast
aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um.
 
Lögreglan gerir ekki athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum á hvítasunnudag, enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald ekki truflað.
 
4.                   Á hvítasunnudag er hvers konar verslun óheimil.  Eftirtalin starfsemi er þó undanþegin:  Gististarfsemi og tengd þjónusta, starfsemi lyfjabúða, bensínstöðva, bifreiðastöðva, verslana á flugvöllum og fríhafnarsvæðum, blómaverslana, söluturna og myndbandaleigna, svo og starfsemi matvöruverslana með verslunarrými undir 600 fermetrum þar sem a.m.k. 2/3 hluti veltunnar er sala á matvælum, drykkjarvöru og tóbaki. 
 
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 19. apríl 2006