13 Janúar 2014 12:00

Ríkislögreglustjóri hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna tillögur til ríkislögreglustjóra að samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða  í stefnumótun og ákvörðunum lögreglunnar. Í starfshópnum eiga sæti Finnborg Salome Steinþórsdóttir, fulltrúi ríkislögreglustjóra sem jafnframt er formaður hópsins, Hildur Þuríður Rúnarsdóttir lögreglumaður, fulltrúi Landssambands lögreglumanna, Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri, fulltrúi lögreglustjórafélagsins, Vignir Elísson rannsóknarlögreglumaður, fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum og Árni Sigmundsson yfirlögregluþjónn, fulltrúi Lögregluskóla ríkisins.  Tillögum starfshópsins skal skilað  til ríkislögreglustjóra í mars 2014.