23 Október 2011 12:00

Lögreglan á Selfossi rannsakar nú mál manns sem handtekinn var á heimili sínu í Þorlákshöfn í nótt.    Maðurinn  er grunaður um að hafa hleypt af skoti eða skotum  á eða við heimili sitt en óljóst er um tilgang þess.  Hann hafði einnig skorið eða skrámað sig með hníf.

Tilkynningin barst til lögreglu kl. 04:07 og tryggðu lögreglumenn frá Selfossi og sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra vettvang.  Maðurinn, sem er á fertugs aldri,  kom síðan sjálfviljugur út úr húsi sínu, kl. 04:46 og gaf sig fram við sérsveitarmenn eftir að hafa rætt við sérþjálfaðann samningamann lögreglu í síma.  Aðrir voru ekki í húsinu.  Hann var færður í fangahús og verður yfirheyrður síðar í dag.   

Ekki er  unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.