7 Maí 2018 10:28

 

Lögreglan á Suðurnesjum kannaði nýverið stöðu trygginga bifreiða á fimm bílaleigum í umdæminu. Niðurstaða þeirrar könnunar var sú að 43 bifreiðar hjá einni bílaleigu voru ótryggðar og voru skráningarnúmer fjarlægð af þeim. Hjá annarri bílaleigu voru sex bifreiðar ótryggðar og voru númerin einnig fjarlægð af þeim. Hinar bílaleigurnar þrjár voru með allt sitt á hreinu.

Þá fjarlægði lögregla jafnframt skráningarnúmer af allmörgum bifreiðum í eigu einstaklinga sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar. Ökumaður einnar bifreiðarinnar sem klippt hafði verið af var svo stöðvaður í akstri skömmu síðar á númerslausri bifreiðinni.