22 Desember 2020 22:05

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi:

  • Áfram hættustig á Seyðisfirði og rýmingar að hluta í gildi vegna skriðuhættu.
  • Frekari afléttun á rýmingum.

Sérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa nú farið yfir gögn sem safnað var í dag og síðustu daga.  Mælingar hafa verið endurteknar á upptakasvæðum skriðufalla síðustu daga og hefur hreyfing minnkað mikið.  Auk þess sýna mælingar á grunnvatni að vatnsþrýstingur í jarðlögum hefur minnkað.  Lítil úrkoma hefur verið síðustu daga og kalt í veðri sem eykur stöðugleika.

(Athugið) Spáð hlýindum frá hádegi á aðfangadag og fram á jóladag.  Vegna þess er ekki talið óhætt að opna aftur svæði þar sem skriður hafa fallið síðustu daga eða næst hlíðinni. Þar er því áfram rýming í gildi (rauð svæði á meðfylgjandi korti).

Aðstæður í Botnabrún voru skoðaðar sérstaklega í dag og er það mat Veðurstofunnar að óverulegar líkur eru á skriðu sem skapað geti hættu neðan Múlavegar (gult svæði á korti sem birt var í dag).  Fólki er því heimilt að snúa aftur heim í þau hús.

Þegar þessi tilkynning er send út, þá er í gildi rýming á því svæði sem er litað rautt á meðfylgjandi korti og er sú ákvörðun í gildi til 27. desember.  Eftir það verða aðstæður metnar á ný og tekin ákvörðun um það hvort rýming skuli standa lengur á einhverjum reitum.

Ef fólk er í vafa um það hvort hús eru innan eða utan rýmingsvæðis, þá eru allar útlínur húsa teiknaðar inná kortið og því hægt að sjá hvorum megin þau lenda.  Starfsfólk í þjónustumiðstöð almannavarna getur einnig aðstoðað fólk til þess að sjá hvort hús eru innan eða utan rýmingasvæða.

Sími þjónustumiðstöðvar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra á Seyðisfirði:  839 9931.